<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Thursday, May 26, 2005
Blogg...

Ágætu brúðhjón og veislugestir!

Já hamingju dagur í Liverpool hjarta mínu í gær, unnum Evrópumeistaratitilinn eftir ótrúlegan sigur á AC Milan, er ekki frá því að ég viti hvernig það er að fá taugaáfall, var ekki langt frá því!
Annars er lífið bara vinna og fótbolti, sama gamla sagan 10. sumarið í röð, þó svo að það sé ekki komið sumar ennþá, meira ógeðið þetta veður alltaf hreint, hvers vegna er maður ekki í útlöndum þar sem er 20 stiga hiti.... t.d. í Danmörku? hmm.. maður spyr sig!

Framundan er leikur við Selfoss, förum suður og spilum við þá á laugardaginn og það er leikur sem verður að vinnast! Alveg á hreinu! Helgina eftir það höldum við norður og tökum á Leiftri-Dalvík og svo er bara komið að IRON MAIDEN, tónleikar þann 7. júní í Egilshöll! Ekki laust við að það sé kominn tilhlökkunarfiðringur í magann!

En ég vil biðja ykkur öll að hugsa vel og vandlega um ykkur og elska náungann.

Til hamingju með daginn!

Seinna.

Posted at 02:28 pm by oligusta
Comments (1)  

Wednesday, May 04, 2005
Þú labbar aldrei einn.......

Liverpool í úrslit Champions League!!!!!! Hef aldrei á ævinni verið jafn nálægt því að skíta á mig úr stressi eins og yfir þessum leik í gær, en tilfinningin er góóóóóóð!!!

Vil samt biðja Ágúst Fannar Einþórsson afsökunar á að hafa, í geðshræringu minni, hringt í hann um leið og leikurinn var búinn. Hann svaraði nú ekki en var svo vinsamlegur að senda mér sms um hæl, og í því stóð: "Skíttu í píkuna á þér!" Nóg um það!

Nú í dag held ég til Reykjavíkur, borg óttans, sem verður viðkomustaður minn á leiðinni til DK þar sem ég ætla loksins að hitta hana Björt mína. Get ekki sagt annað en að mann hlakki gríðarlega til! Ég ætla líka að hitta strákana í borginni (Strákarnir á Borginni?) og bralla ýmislegt skemmtilegt. Og já strákar, þið verðið að minna mig á kaupa viftu í tölvuna mína, Toshiba.

Seinna.

Posted at 11:15 am by oligusta
Make a comment  

Friday, April 22, 2005
Helvítis "hversu vel þekkir þú mig" próf!

Ok, ég er brjálaður! Ég tók þetta ógeðs próf sem Björt setti á síðuna sína í góðri trú um að ég myndi rúlla því upp en neeei þá hefur hún greinilega breyst eða bara ákveðið að enginn (nema Linda býst ég  við) eigi að fá meira 50 stig. Þannig að.. ég gerði svona próf og við skulum sjá hvort hún þekkir mig. Það eru engin brögð í tafli, allt fair and square (annað en hjá henni). Hér er það.

SEINNA.........

Posted at 04:22 pm by oligusta
Comments (3)  

Elsku besta Christiania...


 


Lögregla í Kaupmannahöfn leitar enn fimm manna, sem hófu skothríð í fríríkinu Kristjaníu í gær með þeim afleiðingum að 26 ára gamall karlmaður lét lífið og þrír særðust. Eftir árásina neyddu hlupu árásarmennirnir út úr Kristjaníu og neyddu ökumann til að yfirgefa bíl sinn. Síðan flúðu mennirnir í bílnum.

Ritzau fréttastofan hefur eftir Ole Dahl, yfirmanni morðdeildar Kaupmannahafnarlögreglunnar, að mennirnir hafi væntanlega skilið bílinn einhversstaðar eftir en lögreglan vilji gjarnan finna hann og rannsaka.

Eigandi bílsins gat ekki gefið lögreglu miklar upplýsingar en árásarmennirnir voru allir dökkklæddir og með hettur á höfði.

Að sögn lögreglu hafði maðurinn, sem lét lífið, tengsl við hasssöluna í Kristjaníu og er haft eftir Dahl að þar sé líklega að finna ástæðu árásarinnar. Sjónarvottar lýstu árásarmönnunum þannig, að þeir hefðu væntanlega verið annarrar kynslóðar innflytjendur en þeir sem urðu fyrir skotum voru allir innfæddir Danir. Einn þeirra býr í Kristjaníu.

Haft er eftir Dalh á fréttavef Jyllands-Posten að skotárásin hafi verið skipulögð eins og hernaðarárás og væntanlega tengist hún átökum um hasssölu. Að minnsta kosti þremur skotvopnum var beitt: vélbyssu, annarri sjálfvirkri byssu og skammbyssu og að minnsta kosti 35 skotum var hleypt af.

Tekið af mbl.is

Hvað er að gerast? Seinast þegar ég var þarna voru menn ekki að hafa neinar áhyggjur að öðru en að reykja sitt hass og elska náungann. Núna eru menn farnir að skjóta á hvorn annan með Uzi rifflum að hætti 220 mob.. það er náttúrulega bara fáránlegt! Fyrir ykkur sem eru stödd í Kaupmannahöfn er minningarathöfn um hinn látna í dag, Stóra Bænadaginn kl. 18:30 (að staðartíma) í Stínu.

Seinna...

Posted at 02:21 pm by oligusta
Comments (1)  

Thursday, April 21, 2005
Sumar og sól... já.

Já loksins kom einhver löngun yfir mig til að blogga. Gaman það.
Síðasta helgi var mögnuð, fór á Akureyri þar sem strákarnir voru að keppa á móti Leiftri/Dalvík á sunnudeginum og ég náttúrulega slasaður með engan háls til brúks. Svo að ég fór á laugardeginum og hitti Emil og við skemmtum okkur konunglega! Á ball í Sjallanum og ég veit ekki hvað og hvað, takk Emil!
Vikan líður frekar hratt, ég er að koma nýjum vef UÍA í gagnið og það tekur mestan tíma í vinnunni. Svo er náttúrulega komið sumar, og það ætlar bara að byrja með látum, glampandi sól og ekkert svo kalt, ca. 11°C.
Helgin verður örugglega skemmtileg, við spilum við Fjarðabyggð á laugardaginn um það hvort liðið kemst í úrslit deildarbikarsins, og það verður EKKERT gefið eftir, það er alveg á hreinu! Leikurinn fer held ég fram á drulluvellinum á Neskaupsstað og hefst kl. 14:00, ALLIR AÐ MÆTA! Svo ætlar Dabbinn að mæta á svæðið og tilhlökkunin eftir að sjá kónginn er hreint út sagt gríðarleg! Já, það verður mikið brallað um helgina.

Að lokum vil ég benda öllum á að verða sér úti um þriðjudagsblað DV (19. apríl) fletta á síðu 38 og bera augum eina mestu snild seinni ára... ég hef alltaf haldið að DV væri slúðurblað en það er greinilega bara rugl! Heilagur sannleikur sem fer þar allavega!

En ég bið ykkur heil að lifa þangað til ég blogga næst sem verður sjálfsagt alls ekki strax!

Seinna... það er á hreinu.

Posted at 02:18 pm by oligusta
Make a comment  

Friday, April 08, 2005
Nono, this is just for fun...

Hæ öll!
Ég er semsagt kominn heim frá Portúgal og mættur í vinnu og vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga. Ég ætla mér reyndar lítið að skrifa um þessa Portúgals ferð vegna þagnarskyldu en ég get þó sagt ykkur þetta:

Fagmenn ferðarinnar: Tótó, Húnninn og Sveppurinn
Listamenn ferðarinnar: Allt Hugins liðið eins og það leggur sig!
Sérstakar þakkir: Lögreglan í Portúgal fyrir að halda ró sinni og stjórna þessu batteríi.
Sérstakur styrktaraðili: Johnson&Johnson

Nú tekur  bara við vinna og vinna, á milli þess sem ég ét Voltaren við miklum verkjum og bólgum í hálsi eftir ákveðið höfuðhögg. Í leiknum á móti Haukum fékk ég hné eða eitthvað í hnakkann og sagan segir að ég hafi spurt Binna hvort við værum í fyrri eða seinni hálfleik. Mér fannst það alveg eiga rétt á sér þar sem ég var í ákveðnum vafa en hann skipti mér útaf um leið.

Lengra verður þetta ekki í bili en vonandi get ég sett myndirnar sem ég tók úti hingað inn fljótlega, gleymdi reyndar myndavélinni í rvk hjá Monsanum en við sjáum til!

Seinna.

Posted at 11:06 am by oligusta
Make a comment  

Tuesday, March 15, 2005
2 dagar...

...þangað til hún Björt mín mætir á svæðið! Það er ekki  laust við smá fiðring í maga. En á sama tíma þá hugsa ég nú vel til hennar þar sem hún er að flytja inná Kollegiið í dag, ekki skemmtilegur dagur en ég held hún hafi fullt af hjálparhellum svo að þetta bjargast! Annars sit ég nú bara hérna í volæði mínu þar sem ég er með einhverja djöfuls flensu og er bara hundslappur. Engin vinna og engin æfing, þetta er gáfulegt! Síðustu dagar hafa bara verið eins og venjulega, nema laugardagskvöldið. Þá var Skítamórall að spila í Valaskjálf. Það er langt síðan ég hef farið á ball sem VAR SVONA HELVÍTI LEIÐINLEGT! Ekki bara það að það voru fáir, heldur þekkti ég ekki helminginn af liðinu og svo var náttúrulega Skítamórall að spila, veit ekki hvað ég var að hugsa að ýminda mér að þetta gæti orðið ágætt ball. Nóg um það. Og þá verða lesnar auglýsingar:


Allar húsmæður og allir húsfeður ATHUGIÐ!
 
Meistaraflokkur Hugins hefur nú loksins til sölu glænýja ýsu sem hentar einstaklega vel til suðu, steikingar og í sushi! Kostar ekki neitt!

Hafið samband í s: 8684301

seinna.

Posted at 04:58 pm by oligusta
Make a comment  

Tuesday, March 08, 2005
Ég man!

Skyndilega mundi ég eitt sem ég ætlaði að segja í blogginu áðan. Er reyndar að átta mig á því núna að það er ekkert merkilegt, en ég læt það flakka þar sem ég mundi það og er byrjaður að skrifa.

Ég er búinn að sitja fyrir framan tölvuna í meira og minna allt kvöld og búinn að hlusta á Bubba allan tímann eiginlega. Hann er svo flottur, maður pælir svo lítið í honum sem tónlistamanni þegar hann er alltaf í sjónvarpinu og þannig að maður kann lítið að meta hann áður en maður hlustar bara. Ég veit vel að hann getur verið hrokafullur og finnst hann eiga betra skilið en flestir aðrir en hann er flottur tónlistamaður.  Lög eins og Afgan, Strákarnir á Borginni og Blindsker klikka ekki. Þar hafiði það!

Seinna.

Posted at 11:29 pm by oligusta
Make a comment  

Ísland

Já sæl veriði... Langt síðan síðast.
Nú er maður kominn heim til Íslands og ég verð bara að viðurkenna að það er ekkert gaman. Jújú, mjög fínt í vinnunni og mjög gaman að hitta strákana aftur og byrja að spila fótbolta en það er bara ekkert eins og að vera úti hjá Björt. Já ég veit þetta er væl en svona er þetta bara. Núna eru bara 8 dagar þangað til stúlkan kemur heim í páskafrí og það verður nú ljúft.
En um næstu helgi fer fram það sem menn kjósa að kalla ball aldarinnar. Já ég er hræddur um að Skímó mæti í sveitina. Ég veit nú ekki hvort ég ætla að fara en ef Dabbinn mætir austur þá mæti ég á ball! Hann er að melta þetta. Best væri nú ef allar þessar 101 rottur drulluðu sér austur, Haffi, Símon, Dassi og allir!!!

Þetta er svo furðulegt. Ég er alltaf að hugsa um eitthvað sem ég ætla að blogga, heilu pistlarnir sem breyta heiminum verða til í hausnum á mér en svo þegar ég sest fyrir framan skjáinn þá stari ég bara og ekkert nema einhver vella kemur útúr mér. Vonum að þetta fari að lagast, hlýtur að koma að því.

Seinna.

Posted at 11:22 pm by oligusta
Make a comment  

Thursday, February 24, 2005
Blogg

já.. blogg, blogg, blogg. Hvað á ég að segja ykkur? Jú til að byrja með vil ég biðjast afsökunar á þessari leti í mér. Óafsakanlegt ég veit, en svona er þetta.

Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir, ég hætti í vinnunni á sunnudaginn síðasta og var kvaddur með 340gr. New York strip steik og fríum bjór á barnum. Alls ekki slæmt. Dagarnir þar á eftir hafa einfaldlega gengið útá að eyða sem mestum tíma með Björt minni, við höfum farið í bíó, sáum the Aviator með Lenoardo DiCaprio, og ég verð að segja að þetta er ein besta mynd sem ég hef séð í langan tíma. Dicaprio sannaði þarna aftur (Basketball Diaries) að hann getur leikið strákurinn. Einnig var mjög sérstakt að sjá sjálfa Gwen Stefani bregða fyrir í einu af litlu aukahlutverkunum sem ein af mörgum fylgdarkonum Dicaprio. Magnað.
Síðan höfum við bara horft á sjónvarp, farið í Field's, farið í ljós og haft það kósý.
Nú um helgina ætla Mr. and Mrs. Bergmann að kíkja í heimsókn og það verður sko margt brallað. Það sem er efst á dagskrá hjá mér og Andra er að fara og líta augum hina stórfenglegu litlu hafmeyju. Þess má geta að ég veit ekkert hvar hana er að finna og það gerir missionið bara skemmtilegra; ÓVISSUFERÐ. Myndavélin verður með í för.
En svo á þriðjudaginn er á áætlun að fljúga heim til Íslands. Það verður gert með söknuði, það er alveg á hreinu. En þetta er víst lífið, fullt af erfiðleikum og mótlæti og maður tekur því eins og maður. Þegar til Íslands er komið bíður margt spennandi og þar ber fyrst að nefna Huginn, en sumarið verður mjög skemmtilegt þar sem við spilum jú í 2. deild eins og alþjóð veit. Þá er ég að byrja í nýrri vinnu, hjá ÚÍA, sem ég er líka mjög spenntur yfir. Það versta við þetta allt saman er að þurfa að skilja hana Björt eftir hérna hjá þessum aula baunum. Ég er ekkert bitur.

Jæja, nú er komið að samverustund með Björt. Bið að heilsa frá skítakuldanum hérna í Danmörku.

Seinna.

Posted at 01:06 pm by oligusta
Comments (1)  

Next Page